05.11.2000-11.11.2000
Eitt hundrað manns, stjörnufræðingar og stjörnuspekingar, sóttu
ráðstefnu. Fyrir ráðstefnugesti var lögð eftirfarandi spurning:
"Hvor hópurinn, stjörnufræðingar eða stjörnuspekingar, er fjölmennari
(að þér sjálfum undanskildum)?" Fyrstu 50 sem svöruðu spurningunni
sögðu stjörnuspekingana vera fjölmennari. Nú er vitað að stjörnuspekingar
segja aldrei satt og að stjörnufræðingar segja alltaf satt. Hve margir
stjörnufræðingar sóttu ráðstefnuna?
|