17.12.2000-23.12.2000 - lausn


Svarið er 6 dagar.  Verkamaðurinn hlýtur að vera fjarverandi 48/12 = 4 sinnum fjölda daga sem hann mætir.  Fjöldi vinnudaga er því 1/5 af heildardagafjöldanum 30, þ.e. 6 dagar.

Þetta má líka setja upp í jöfnu.  Ef hann vinnur x daga, þá mætir hann ekki til vinnu 30 - x daga.  Þar með fæst jafnan

48·x - 12·(30 - x) = 0, sem gefur lausnina x = 6.